Grunnur 1
15.2.2012
Hámarksfjöldi: 8
Skráðir: 1
|
|
|
Námskeið þar sem farið er í grunnatriði í smíðakennslu verður haldið í Kópavogsskóla miðvikudagana 15. og 29. febrúar kl. 16-18. Kennari er Valdór Bóasson smíðakennari.
Heflun og meðferð hefils, Sagir og meðferð þeirra.
Farið verður í notkun og meðferð verkfæranna og hvernig nemendum er kennd notkun þeirra.
Kennt verður að brýna helstu handverkfæri sem notuð eru í smíðastofunni.
Námskeiðsgjald er kr. 3000 fyrir félaga í Fís (árgjald 2012 greitt)
Þetta námskeið er tilraun til að mæta þörfum þeirra sem eru að stíga sín fyrstu skref í smíðakennslu hvort sem þeir eru með kennsluréttindi í greininni eða ekki.
Áhugasamir skrái sig sem fyrst.
Umsjón: Valdór Bóasson
|
Mögnuð verkefni
20.2.2013
Hámarksfjöldi: 8
Skráðir: 0
|
|
|
Á þessu námskeiði verður kennt að smíða einföld verkefni sem nýta lágspennt rafmagn. Smíðuð verða 2-3 verkefni og farið yfir helstu tæknileg og hagnýt atriði sem þarf að kunna skil á.
Námskeiðið verður haldið í Hólabrekkuskóla 20. og 21. febrúar kl. 15-17 og kennari er Engilbert Imsland smíðakennari.
Efnisgjald er kr. 2000 Námskeiðsgjald er kr. 3000 fyrir félaga í Fís (árgjald 2012 greitt)
Áhugasamir skrái sig sem fyrst!
Umsjón: Engilbert Imsland
|
Málmsmíði 2
23.3.2012
Hámarksfjöldi: 8
Skráðir: 1
|
|
|
Þetta námskeið er í undirbúningi og verður haldið ef næg þátttaka fæst.
Námskeiðið í málmsmíði 23. og 24. mars í Hvassaleitisskóla Reykjavík.
Mæting er kl. 16:00 á föstudeginum til kl. 19:00 og á laugardeginum er mæting kl. 10:00 til 16:00-17:00
Námskeiðið er miðað við þá sem hafa tekið málmsmíði 1 eða hafa einhverja reynslu í málmsmíði.
Námskeiðsgjald er kr. 5000 fyrir félaga í Fís - efni innifalið
Áhugasamir skrái sig sem fyrst!
Umsjón: Gunnar B. Pálsson
|
Málmsmíði 1
9.3.2012
Hámarksfjöldi: 8
Skráðir: 0
|
|
|
Þetta námskeið er í undirbúningi og verður haldið ef næg þátttaka fæst.
Námskeiðið í málmsmíði 9. og 10. mars í Hvassaleitisskóla Reykjavík.
Mæting er kl. 16:00 á föstudeginum til kl. 19:00 og á laugardeginum er mæting kl. 10:00 til 16:00-17:00
Námskeiðið er miðað við byrjendur í málmsmíði. Einfaldar útsaganir og vangaveltur vegna verkefnavals nemenda. Hönnun verkefna með nemendum og útfærsla þeirra í efnið. Einfaldar kveikingar og samsetningar.
Námskeiðsgjald er kr. 5000 fyrir félaga í Fís - efni innifalið
Áhugasamir skrái sig sem fyrst!
Umsjón: Gunnar B. Pálsson
|