Ályktun aðalfundar Fís 2006 um smíðakennslu

smidakennari.is Til baka

Ályktun um smíðakennslu

Aðalfundur Félags íslenskra smíðakennara haldinn í Reykjavík laugardaginn 25. nóvember 2006, lýsir yfir fullum stuðningi við stjórn félagsins er hún í opnu bréfi til Menntasviðs Reykjavíkur gerir grein fyrir þeim gjörningi borgaryfirvalda undanfarin ár, að draga markvisst úr smíðakennslu. Með fækkun kennslustunda, með minnkun kennslurýmis og í nýjustu skólunum hafa ekki verið byggðar raunverulegar smíðastofur í andstöðu við gildandi grunnskólalög og aðalnámskrá.

Með þessu hátterni er Reykjavíkurborg að brjóta á rétti nemenda sinna í grunnskólum. Smíðakennarar hafa verulegar áhyggjur af þessu ábyrgðarleysi borgaryfirvalda.

Þetta er mjög alvarleg staða og eðlisbreyting á íslensku grunnskólastarfi og í mótsögn við hátíðarræður forystumanna í menntamálum. Þar sem jafnan er lögð rík áhersla á að efla þessa sérstöðu íslenskra grunnskóla að kenna verkgreinar.

Þessi þróun er enn alvarlegri þar sem höfuðborgin skapar þannig slæmt fordæmi með því að fara á svig við grunnskólalög og aðalnámskrá að mati aðalfundarins. Önnur sveitarfélög eru þegar byrjuð að feta þessa sömu slóð.

 

 

Fleira tengt þessu máli



Félag íslenskra smíðakennara - Laufásvegi 81 - 101 Reykjavík - kt. 490971-0179
Um vefinn - Ábendingar - Forsíða