Viðbótarkjör vegna innkaupa og umsjónar með smíðastofu

smidakennari.is Til baka

Í kjarasamningi FG og LN frá nóvember 2004 er ákvæði sem smíðakennarar ættu ef til vill að geta glaðst yfir.

Í 8. grein segir svo: "Grein 2.1.6.2 í núgildandi samningi breytist og hljóði svo:
Umsjón með gerð innkaupalista er hluti af vinnuskyldu kennara. Innkaup og viðhald búnaðar er ekki hluti af faglegum störfum kennara. Heimilt er að semja við einstaka kennara um að sinna þessum störfum innan dagvinnutíma eða í yfirvinnu. "

Þetta ákvæði tekur á óánægju margra verkgreinakennara með það fyrirkomulag sem verið hefur á vinnu við innkaup og umsjón með stofu. Í þessum línum kemur skýrt fram að innkaupaferðir og viðhald tækja og innanskokksmuna í smíðastofu er ekki hluti af faglegum störfum kennara.

Umræða um viðbótarkjör vegna innkaupa og umsjónar með smíðastofunni hefur verið mikil meðal smíðakennara undanfarin ár. Þessi verk hafa verið í lausu lofti í mörgum sveitarfélögum frá árinu 2000 þegar kjarasamningur gekk í gildi sem setti þessi störf og greiðslur fyrir þau í algjört uppnám.

Fyrrgreint ákvæði samningsins opnar ef til vill möguleika á að greitt verði á sanngjarnan hátt fyrir þessi störf.



Félag íslenskra smíðakennara - Laufásvegi 81 - 101 Reykjavík - kt. 490971-0179
Um vefinn - Ábendingar - Forsíða