Fundur smíðakennara í Reykjavík 28. sept. 2004

smidakennari.is Til baka

Smíðakennarar í Reykjavík funda um kjaramálSmíðakennarar í Reykjavík héldu fund í gær, þriðjudaginn 28. september. Tilefni fundarins og aðalumræðuefni hans var tillaga um að stofna sérstaka deild smíðakennara innan Kennarafélags Reykjavíkur. Þessi deild á að hafa með umsjón með ýmsum sameiginlegum hagsmunamálum smíðakennara í borginni.

Það er ljóst að mikill samhugur var um að nauðsynlegt sé að efla samstöðu og samheldni smíðakennara hjá þessu stærsta sveitarfélagi landsins. Ýmis mál brenna á kennurum, bæði er varða kjör og aðstöðu. Voru málin rædd frá ýmsum hliðum og komu nokkur sjónarmið fram. M.a. komu fram áhyggjur um að þessi aðgerð myndi veikja Félag íslenskra smíðakennara og réttara væri að efla það félag. Niðurstaða fundarmanna var sú að vissulegar þurfi að styrkja FÍS og það geti t.d. gerst með svona deild. FÍS er fagfélag á landsvísu sem ekki hefur möguleika á að koma að kjaraviðræðum og fleiru sem snertir samskipti fræðsluyfirvalda og kennara í Reykjavík. Kennarafélag Reykjavíkur er hinsvegar aðili að kjarasamningi kennara í gegnum KÍ og þar eru möguleikar á að koma áhrifum að. Skipuð var undirbúningsnefnd til að vinna að stofnun deildarinnar. Samræður verða teknar upp við textílkennara um samstarf í þessu samhengi.

Fundurinn samþykkti kröftuga ályktun sem hefur verið send samninganefndunum og fjölmiðlum. Sjá nánar...

Greinargerð um hagsmunahóp smíðakennara í Reykjavík



Félag íslenskra smíðakennara - Laufásvegi 81 - 101 Reykjavík - kt. 490971-0179
Um vefinn - Ábendingar - Forsíða