Ályktun um kjaramál á fundi smíðakennara í Reykjavík haldinn 28 september 2004
· Fundur smíðakennara lýsir yfir fullum stuðningi við samninganefnd grunnskólakennara og skorað er á nefndina að hvika í engu í baráttunni fyrir því að fá réttmætar launakröfur kennara fram
· Fundurinn lýsir andstyggð sinni á þeim vinnubrögðum sveitarstjórnarmanna er felst í því að beita grunnskólabörnum fyrir sig í baráttunni við ríkisvaldið til að fá meira fjármagn til að reka sveitarfélögin
· Kennarar geta ekki tekið á sig ábyrgðina á þeirri óráðsíu sem felst í sífelldum hallarekstri sveitarfélaganna. Þar hafa kennarar hvergi komið nærri
· Ágætu sveitarstjórnarmenn, það að reisa glæsihallir sjálfum sér til dýrðar þvers og kruss um landið í mörgum sveitarfélögum bætir ekki skólastarfið þegar ekki er hægt að reka skólanna vegna of mikils kostnaðar
· Smíðakennarar minna samninganefndina á þá staðreynd að ekki gengur lengur að ætlast til þess að smíðakennarar vinni störf launalaust eins og nú er gert sem á engan hátt getur talist til kennslustarfa.
· Smíðakennarar brýna alla grunnskólakennara til að standa fast við bakið samninganefnd kennara og að þeir láti ekki stöðugan áróður gegn þeim í fjölmiðlum hrína á sér
Smíðakennarar í Reykjavík 28. september 2004 |