Mars 2004
Þann 9. mars s.l. áttum við undirritaðir fund með Finnboga Sigurðssyni formanni Félags grunnskólakennara. Þar ræddum við óánægju smíðakennara með framkvæmd núgildandi kjarasamnings í sambandi við aukastörf sem víða hafa fallið í hlut smíðakennara og mjög oft án þess að greitt hafi verið fyrir þau.
Þar er um að ræða umsjón með búnaði smíðastofunnar og innkaup á efni til kennslunnar. Mjög víða hafa smíðakennarar verið látnir vinna þessi störf launalaust. Störfin eru þess eðlis að nær ómögulegt er að sinna smíðakennslunni ef þau eru ekki unnin og hafa kennarar því tekið þau að sér hvort sem greiðsla hefur fengist eða ekki.
Eftir samningana árið 2000 kom fram sá misskilningur að þessi störf hefðu öll verið færð inn í samninginn sem hluti af vinnuskyldu. Þetta er með öllu óviðunandi og nauðsynlegt að ganga þannig frá samningum að sá misskilningur sé úr sögunni að þessi störf séu hluti af vinnuskyldu smíðakennara undir stjórn skólastjóra. Það er augljóst að þau geta ekki talist til faglegra kennslustarfa og eru mun umfangsmeiri en umsjón með almennri kennslustofu.
Við afhentum honum bréf frá stjórn Félags íslenskra smíðakennara þar sem gerð er grein fyrir þessu máli og sett fram krafa um að í komandi samningum verði gengið þannig frá málum að þessi misskilningur sé úr sögunni.
Tók hann okkur mjög vel og hét því að ekki yrði gengið frá samningi án þess að gerð yrði með einhverjum hætti grein fyrir þessu máli og tekinn af allur vafi um skilning FG og smíðakennara á þessum atriðum. Í samningnum frá 2000 hafi það aldrei verið skilningur samninganefndar KÍ að þessi störf væri inni í samningnum. Um það væri hann og smíðakennarar sammála að þessi störf væru ekki hluti kjarasamningsins og um þau yrði að semja sérstaklega við kennara ef þeir tækju þau að sér.
Bréf til samninganefndar
Þröstur Sverrisson Einar Kristján Hilmarsson |