Stjórnarfundur NST 2003

smidakennari.is Til baka

Nst Nordisk sløyd- og tekstillærerforbund

 

Stjórnarfundur  27.-28. júní  Bláa Lóninu á Íslandi.

 

Mættir.

 

Frá Íslandi                              Frá Noregi                  Frá Svíþjóð

Birna Björnsdóttir                     Lennart Johansson        Inger Sörell

Ólafur Sigurvaldason                 Liv Merete                   Joakim Ernback

Arngunnur Sigþórsdóttir

Sveinhildur Vilhjálmsdóttir

 

Frá Danmörku                                    Frá Færeyjum

Leif Rosenbec                          Sjúrður Johansson

Betty Lund Jenssen.

 

 

Stjórn NST hélt fund í Bláa Lóninu í júní.  Þann fund átti að halda í Stykkilshólmi í framhaldi af samnorrænni ráðstefnu og námskeiði um greinarnar.  Sú ráðstefna féll niður vegna þess að ekki fengjust nægilegir styrkir til að fjármögnunar og varð niðurstaðan sú að það fáir treystu sér til að sækja ráðstefnuna svo hún var blásin af.

Stjórnarfundurinn var hins vegar fluttur að Bláa Lóninu til að spara kostnað erlendu gestanna.

Það sem helst var rætt á þessum stjórnarfundi.

 

Snæfellsnes 2003

Hvað fór úrskeiðis varðandi Snæfellsnesfjáröflun en þetta er í þriðja sinn sem slík samnorræn ráðstefna textíl og smíðakennara fellur niður vegna fjárskorts.

Þáttaakendur voru sammála að um skamman fyrirvara var að ræða.  Það þurfi í það minnsta  tveggja ára undirbúining til kynninga og fjáröflunar.

 

Samþykkt var að halda veglega rástefnu með námskeiðum í Noregi árið 2006 en þá verður norska félagið 75 ára. 

 

Kennaraskipti milli landa. 

NST hefur um árabil annast kennaraskipti milli landa og er þó nokkuð um það innan  Skandinavíu.  Hafa kennarar leitað til sinna fagfélaga sem hafa komið umsóknum til NST stjórnar sem fundið hefur  skóla í því landi sem viðkomandi hefur óskað.

Íslendingar  hafa verið óvirkastir í að sækja aðra skóla heim sem skýrist mögulega á því að kennarar sjálfir kosta ferðir og oft uppihald.

Tillaga kom frá Svíþjóð að samræma betur þessi skipti og hafa sérstaka dagsetningu þar sem öllum óskum félaganna er safnað saman og NST greiði götu þeirra.

Frestað til næsta fundar þar sem hvert félag ætlar að leita til sinna kennarsamtaka um hvort þau geti styrkt kennara sem óska að gerast gisti/ skiptikennarar.

 

 

Staða greinanna.

Fulltrúar landanna gerðu stuttlega grein fyrir stöðu greinanna í sínu heimalandi.

 

Ísland

Birna sagði frá nýju námskránni  á Íslandi og vanda íslenskra smíðakennara við að fá greitt fyrir innkaup og umsjón með stofum.  Arngunnur ræddi einnig um nýju námskrána og að textíllinn tilheyriði nú listgrein og að textílkennarar væru samkvæmt nýjum kjarasamning lægra launaðir en bekkjakennarar.

 

Svíþjóð.

 Jóakim segir smíðina vera vinsælasta fag skólanna samhvæmt nýlegri skoðanakönnun þar í landi.  Svíjar standi hinsvegar frammi fyrir því vandamáli að innan tveggja ára mun helmingur smíðakennara ekki vera sérmenntaður,  mjög margir lærðir kennarar eru um það bil að fara á eftirlaun og unga fólkið hefur sneytt hjá að mennta sig í smíðakennslu bæði vegna launa og vegna þess að öðrum fögum er gert hærra undir höfði.  Sænska textílgreinin stendur frammi fyrir sömu vandamálum.

 

Færeyjar

Sjúrður segir frá breytingum sem gerðar voru í færeyjum 1998. Þar sem textíll, smíðar, myndmennt og heimilisfræði var gert að einu fagi,”handverk og list”.  Hann talaði um að þær breytingar hefðu orðið til þess að enn minni tími var fyrir hendi og nemendur fá ekki nema brot af hverrri grein á hveju ári.

 

Danmörk

Leif segir að yfirvöld vilji stýra meira en áður og séu að vinna að samræmdu matskefi yfir allt landið.  Þar hefur einnig þremur fögum verið slegið í eitt, smíði, textíl og heimilifræði en ekki til tími eða reglugerð fyrir hverja grein fyrir sig.  Skólinn úthlutar tímum.

Bæði dönsku fagfélögin hafa unnið ötulega að því undanfarin ár að gera fögin sýnileg í þjóðfélaginu og skýrði Betty frá útsaumskeppni sem lauk með stórri sýningu. Og hvernig þau hyggjast útfæra þá keppni frekar á næstu árum.

 

Noregur

Frá því árið 1960 hefur fögunum verið blandað saman.  Norðmenn fengu nýja aðalnámskrá 1997 þar sem vægi þessara greina var aukið og er nú fjórða stærsta fagið í grunnskólanum með 836 tíma í grunnskólanum.

 

Næsti fundur.

Ísland lét af stjórn NST og tekur  Noregur við og mun leiða NST samstarfið til 2006.  Næsti stjórnarfundur verður haldinn í Færeyjum  17.-18 júní 2004.

 

Dagskrá fundar 2004

1. Bera saman kjör smíða og textílkennara norðrlandanna.

2. Bera saman námskrár faganna.

Hvert land komi með námská og kjarasamning á dönsku eða ensku og í tölvutæku formi þar sem unnið verður að því að koma þessum upplýsingum á heimasíðu NST.

3. Skipulag rástefnu og námskeiða í Noregi 2006

4.Skipulag og reglugerð um kennaraskipti milli landa og aðgengi kennara á námskeið fagfélaga allra landa.

 

                                  Birna Björnsdóttir



Félag íslenskra smíðakennara - Laufásvegi 81 - 101 Reykjavík - kt. 490971-0179
Um vefinn - Ábendingar - Forsíða