Fréttabréf Fís / 2. tbl. desember 2008

smidakennari.is Til baka
 
Fréttabréf FÍS
2. tbl. desember  2008

 

Á Aðalfundi FÍS í nóvember var kosin ný stjórn. Hana skipa eftirtaldir aðilar: Kristinn Svavarsson formaður, Agnes Þorleifsdóttir, Skarhéðin Guðmundsson, Andrés Haukur Hreinsson og Ólöf Erlingsdóttir eru stjórnarmenn. Einar Kristján Hilmarsson og Valdór Bóasson eru varamenn en Einar er einnig umsjónarmaður heimasíðunnar.

Á fundinum var borin upp tillaga um að hækka félagsgjöldin í 3500 kr., og var það samþykkt einróma. Greiðsluseðlar félagsgjalda verða sendir út í janúar eða febrúar.

Í almennum umræðum tjáðu nokkrir sig um áhyggjur af skorti á smíðakennurum, of fáir skila sér til kennslu eftir nám. Nokkrir nemar og nýútskrifaðir hafa tjáð sig um að þeir treysti sér hreinlega ekki til að kenna greinina, þá skorti þekkingu, kjark og reynslu til að takast á við starfið á eigin vegum.

Stjórnin vil kynna félagið fyrir nemum á þriðja ári í kennaranámi og jafnvel bjóða þeim í heimsókn í einhverja skóla til að veita þeim faglegan stuðning, bæði áður og eftir að þeir byrja að kenna smíði. Það er mikilvægt að kynna greinina betur en nú er gert og kennarar styðji við bakið hver á öðrum. Falli kennsla í greininni niður í einhverjum skólum vegna kennaraskorts  er hætta á að þrengt verði að greininni og hún eigi undir högg að sækja í framtíðinni. Yfirvofandi niðurskurður í þjóðfélaginu gæti bitnað illilega á list og verkgreinakennurum og því mikilvægt að yfirvöld sjái sér ekki leik á borði og afsaka niðurfellingu smíðakennslu með skorti á fagmenntuðum smíðakennurum.

Námskeiðahald

Stjórnin stefnir nú á að hafa málmsmíðanámskeið og einnig verður farið út á land með stutt námskeið eins og tálgunámskeið og kannski plast og rafmagnsvinnu. Kristinn Svavarsson verður með námskeið nú á vorönninni um kennslufræði og fl. sem ætti að nýtast sem endurmenntunarnámskeið bæði fyrir lærða kennara og ófaglærða. Nokkuð oft hefur verið óskað eftir slíku námskeiði.

Fræðslufundur um kennslufræði  var haldinn í Salaskóla nú í haust. Kristinn Svavarsson hélt fyrirlestur um kennslufræði og kynnti nýjar kennslubækur. Stjórnin og aðrir smíðakennarar mættu með nokkur verkefni sem voru til sýnis og úr varð góður og vel sóttur fundur.

NST

Ráðstefna norræna smíða- og textílkennarfélagsins var haldinn í Finnlandi þar sem staða verk- og listgreina á norðurlöndunum var rædd. Hin norðurlöndin auk Íslands, kvörtuðu flest yfir því að greinarnar ættu undir högg að sækja, á sumum stöðum er lítil ásókn í að kenna greinarnar þar sem of fáir sækja í smíðakennaranám og á öðrum stöðum hefur verið sparað og tímamagn minnkað. Næsti fundur verður í beinu framhaldi af Vingstedráðstefnu danska smíðakennarafélagsins í mars. Allir smíðakennarar norðurlandanna eru velkomnir á ráðstefnuna en hún er haldin árlega.

 

 



Félag íslenskra smíðakennara - Laufásvegi 81 - 101 Reykjavík - kt. 490971-0179
Um vefinn - Ábendingar - Forsíða