| |
Fréttabréf
FÍS
1. tbl. maí 2008 |
 |
Undanfarið hefur borið töluvert á atvinnuauglýsingum þar sem auglýst er eftir smíðakennurum. Stjórnin varð vör við það síðastliðið ár að engin smíðakennsla var í nokkrum skólum vegna þess að enginn fékkst til að kenna smíði. Allra síðustu vikur hefur verið auglýst eftir smíðakennurum í allmarga skóla og má þar nefna Breiðholtsskóla, Brúarskóla, Korpuskóla, Seljaskóla, Vesturbæjarskóla, Víkurskóla, Álftanesskóla, Sunnulækjarskóla, Grunnskóla Snæfellsbæjar, Stóru-Vogaskóla, Engidalsskóla, Setbergskóla, Víðistaðaskóla, Öldutúnsskóla, Grunnskólann Tálknafirði, Akurskóla, Flúðaskóla, Grunnskólann á Eskifirði og Grunnskólann í Þorlákshöfn. Þetta sýnir okkur að verulegur skortur er á smíðakennurum og mikilvægt er að bregðast við því á einhvern hátt.
Stjórnin átti fund með kennurum í smíðadeild KHÍ vegna þessa. Allir voru sammála um að við þurfum að markaðssetja greinina okkar betur, um 17 námsleiðir eru í boði í Kennaraháskólanum næsta vetur og takmarkaður heildarfjöldi er tekinn inn.Við þurfum að gera greinina okkar sýnilegri og hefur stjórn félagsins nú í undirbúningi að láta prenta efni til að kynna hana betur. Í haust verður unnið að fleiri verkefnum en mikilvægt er að allir starfandi smíðakennarar leggist á eitt og láti bera meira á sér. Sameinuð þurfum við að vinna saman og það tekst vel ef margir leggja hönd á plóg. Við hvetjum ykkur til að mæta vel á opna fundi sem félagið heldur en næsti fundur verður í haust.
Félagsgjöld og félagatal
Félag Íslenskra smíðakennara telur um 175 starfandi smíðakennara og þar af hafa um 125 staðfest aðild að félaginu með því að greiða félagsgjöldin fyrir árið 2008. Töluvert er um tilfærslur í starfi en stjórnin leitast við að fylgjast sem best með því til að ná til sem flestra. Mikilvægt er að senda okkur allar upplýsingar um tilfærslu í starfi og benda okkur á þegar nýjir kennarar taka til starfa. Félagsgjöldin eru 3000 kr á ári og eru sendir út greiðsluseðlar á kennitölu smíðakennara. Öll samskipti, fundarboð og fl. fara gegnum tölvupóst svo mjög mikilvægt er að senda okkur upplýsingar um virkt netfang. Allar fyrirspurnir fara gegnum heimasíðu félagsins www.smidakennari.is
Ráðstefnur og fundir erlendis
Nordisk slojd- och textillararforbundet er með stjórnarfund í Helsinki 2. og 3. júni. Formaður FÍS, Agnes Þorleifsdóttir og formaður textílkennarafélagsins fara á fundinn.
Vingstedráðstefnan á vegum Danska smíðakennarafélagsins var haldin í mars. Valdór smíðakennari í Kópavogsskóla fór á ráðstefnuma, en þar eru alltaf haldin stutt áhugaverð námskeið. Allir smíðakennarar eru velkomnir á þessa rástefnu sem er haldin á hverju ári í marsmánuði. Valdór og Agnes munu líklega segja okkur frá því sem markvert var á opnum fundi í haust.
Námskeið erlendis
Grunnskólakennarar eiga inni 120.000 kr endurmenntunarstyrk fyrir hver tvö ár.
Margir bjóða upp á námskeið fyrir smíðakennara, auk Handverkshússins og félagsins eru nokkrir áhugaverðir staðir erlendis sem bjóða upp á spennandi námskeið.
Edinbourogh College of Art, býður upp á sumaskóla, einnar viku námskeið í t.d. skartgripagerð, málmsmíði, mosaik og Tiffanýsglervinnu. Heimasiða skólans er www.eca.ac.uk og linkur með upplýsingum um sumarnámskeiðin er http://www.eca.ac.uk/index.php?id=670 þar má hlaða niður bækling með öllum upplýsingum um sumarnámskeiðin, gistingu, verð og fl. Bæklingurinn kemur út í febrúar á hverju ári.
Sænska heimilisiðnaðarfélagið rekur öflugt námskeiðssetur í dölunum. Þar er boðið upp á ótrúlegan fjölda stuttra námskeiða allt árið. Námskeið í boði eru meðal annars tálgun , álendurvinnsla, málmsmíði, járnsmíði, leikfangasmíði, mekkanismaverkefni og margt fleira. Heimasíðan er www.saterglantan.se veljið linkinn kortkurser og skoðið gífurlegt úrval af námskeiðum. Upplýsingar eru einnig á ensku. Tveir smíðakennarar fara á námskeið í sumar og verður sagt frá því síðar á opnum fundi.
Félagið er mjög öflugt og námskeið eru í boði um land allt, til að finna fleiri námskeið má fara inn á heimasíðu félagsins www.hemslojd.org og t.d. undirfélags sem er www.hemslojd.se einnig beint inn á einn námskeiðsstaðinn www.naas.se. En þar er t.d þessi námskeiðsbæklingur:
http://www.sv.se/files/filer/avd166/Kursprogram2008_natet.pdf
Danska og norska heimilisiðnaðarfélagið er einnig með námskeið www.husflid.no og www.husflid.dk til að finna námskeið þarf að fara inn á undirfélögin/svæðis félögin.
Danska smíðakennarafelagið kynnir Vingstedráðstefnuna undir linknum konferenser á heimasíðu sinni www.sloejd.dk. Á ráðstefnunni fer mestur tími í námskeiðin.
Danski smíðakennaraháskólinn http://www.sloejd-kbh.dk/ er einnig með námskeið í boði yfir veturinn, yfirleitt tveggja vika kúrsa sem ætlaðir eru smíðakennaranemum.
Þeir sem vita um fleiri námskeið ættu að láta okkur vita svo við getum sett upplýsingar á heimasíðu félagsins.
 
Praktískar lausnir- fræðslufundur
Fræðslufundur var haldinn nýlega í Hólabrekkuskóla og var vel mætt. Þessi fundur var mjög góður og deildu nokkrir smíðakennarar með sér mörgum góðum lausnum og Wurth sölubíllinn kom í heimsókn, okkur gafst tækifæri á að skoða hann og féngum svo afsláttarkort að gjöf. Nokkrar myndir frá vinnukvöldinu má sjá hér í þessu fréttabréfi.
Vinnukvöldin sem hafa verið á dagskrá hafa gefist mjög vel og ætlum við að halda þeim áfram, við viljum einnig fara með vinnukvöld og fræðslufundi eins og praktískar lausnir út á landsbyggðina og verður stefnt að því næsta haust.
Stjórn FÍS
 
|