Fréttabréf Fís / 2. tbl. september 2007

smidakennari.is Til baka
 
Fréttabréf FÍS
2. tbl. september  2007

 

Félagatal smíðakennara

Félagið leggur nokkra vinnu í að halda utanum félagatalið og markmiðið er að hafa alla smíðakennara í félaginu. Nokkur fjöldi hefur ekki greitt félagsgjöld ársins 2007 en greiðsluseðlar voru sendir út snemma á árinu. Það er von okkar að þeir sem eftir eiga að greiða vilji vera í félaginu og greiði greiðsluseðilinn sem allra fyrst. Þeim sem ekki vilja vera með er vinsamlega bent á að láta okkur vita. Á næstunni veður unnið að því að uppfæra félagatalið og munu nokkrir smíðakennarar fá hringingu eða tölvupóst það sem þeim verður boðið að vera með. Mikið af stöðum voru auglýstar síðastliðið vor og nú í haust og ljóst að einhverjar tilfæringar hafa orðið milli skóla. Vinsamlega sendið okkur póst á smidakennari@internet.is og látið okkur vita af breytingum á vinnustað, netfangi og fl. til að hafa félagatalið sem réttast.

Vorfundurinn

Vorfundur félagsins var haldinn í Hlíðaskóla í mai og var hann vel sóttur. Einar Kristján Hilmarsson fræddi okkur um ferð á ráðstefnu smíðakennara í Danmörku. Valdór sýndi skemmtilegt tálguverkefni og góðar tálgubækur sem við ákváðum að biðja Skólavörubúðina að sérpanta fyrir félagsmenn. Fjölmargir pöntuðu bækurnar og þau eintök sem Skólavörubúðin ætlaði að selja í versluninni pöntuðust öll upp. Bækurnar eru nú komnar og þeir sem áttu pantað geta nálgast þær hjá skólavörubúðinni.

Við höfum áhuga á að gera þetta aftur svo að látið okkur endilega vita ef þið vitið af góðum bókum sem nýtast til smíðakennslu.

Vinnukvöld

Stjórnin hefur hug á að hafa vinnukvöld í vetur þar sem smíðakennarar hittast til skrafs og ráðagerða og vinna að ákveðnum verkefnum gegn mjög vægu efnisgjaldi. Fyrst var boðið uppá vinnukvöld í tálgun og örnámskeið verður í boði fyrir þá sem vilja. Valdór Bóasson í Kópavogsskóla bauð til sín og Bjarni Þór Kristjanson var gestakennari hjá Valdóri. Tálgaðir voru m.a. greinajólasveinar en Valdór kenndi að tálga skemmtileg andlit.

Þeir sem geta hugsað sér að hafa vinnukvöld hjá sér eru beðnir að láta okkur vita.

Gaman væri t.d að hafa örnámskeið í leðurvinnu, hornavinnu og fl.

Haustþing í Borgarfirði

Fyrirhugað er að halda haustþing að Varmalandi 15. september. Kennarafélag Vesturlands stendur fyrir þinginu og aðilar frá stjórninni munu mæta og hitta smíðakennara til skrafs og ráðagerða.

Námskeið í vetur

Námskeiði í rennismíði er nýlokið, ekki er búið að ákveða hvaða námskeið verður boðið upp á í vetur en það verður gert á næstunni, ef einhverjar óskir eru má gjarnan senda okkur línu.

Útskurðanámskeið er á næstunni eins og sjá má í auglýsingu á heimasíðunni, félagið greiðir ekki niður það námskeið.

Með kveðju

Stjórn FÍS

 

 



Félag íslenskra smíðakennara - Laufásvegi 81 - 101 Reykjavík - kt. 490971-0179
Um vefinn - Ábendingar - Forsíða