| |
Fréttabréf
FÍS
1. tbl. apríl 2007 |
 |
Síðan í haust...
Loks kemur fyrir augu ykkar síðbúið fréttabréf félagsins, en markmið stjórnarinnar er að það komi út 4-5 sinnum á ári og flytji helstu fréttir af starfi félagsins. Síðan síðasta fréttabréf kom út hefur aðalfundur félagsins verið haldinn en hann fór fram þann 25. nóvember s.l. Þar var meðal annars kosin ný stjórn sem er þannig skipuð: Agnes Þorleifsdóttir formaður, Skarphéðinn Guðmundsson varaformaður, Pétur Th. Pétursson gjaldkeri, Valdór Bóasson ritari og Ólöf Erlingsdóttir meðstjórnandi. Kristinn Svavarsson og Einar Kristján Hilmarsson eru varamenn. Nánari upplýsingar um stjórnarfólk er á heimasíðunni.
Undanfarin misseri hefur stjórnin fjallað mikið um stöðu námsgreinarinnar og þá stefnu Menntasviðs Reykjavíkur að draga verulega úr smíðakennslu í grunnskólum borgarinnar og skera aðstöðu niður í nýjum skólum en þar hafa smíðastofur verið fremur litlar og jafnvel án vélasals og viðeigandi tækja. Lotukerfi hafa einnig valdið því að tímafjöldi er nú í mörgum skólum mun minni en á að vera samkvæmt námskrá.
Í nóvember sendi stjórn FÍS opið bréf til menntaráðs Reykjavíkur þar sem lýst var áhuggjum yfir þessari þróun. Bréfið má sjá á heimasíðu smíðakennara undir liðnum 'kjaramál og fleira'. Þar má líka sjá ályktun sem aðalfundurinn samþykkti og send var menntaráði, fjölmiðlum og fleium.
Í febrúar boðaði menntaráð stjórnina á fund vegna þessa þar sem málin voru rædd og hlustað var á áhyggjur okkar. Skemmst er frá því að segja að menntaráð var tilbúið til að taka athugasemdir okkar til greina varðandi þrjá nýja skóla sem fyrirhugað er að byggja á næstunni. Vonumst við því til að smíðastofur verði betur úr garði gerðar hvað varðar stærð og tækjakost í þessum nyju skólum en þeim sem hafa verið byggðir á síðustu þremur árum. Það er mikilvægt fyrir okkar litlu stétt að vera í góðu sambandi og fylgjast vel með framtíðarskólabyggingum svo greinin okkar hnigni ekki í náinni framtíð.

Félagsgjald
Greiðsluseðlar voru sendir út nýlega til allra smíðakennara, með því að greiða seðilinn staðfestið þið aðild að félaginu og eigið kost á að komast á niðurgreidd námskeið og inná verkefnabrunninn á heimasíðunni. Aðgangi að brunninum verður lokað í mai þeim sem ekki hafa greitt. Félagsgjöldin eru einu tekjur félagsins og án þeirra væri ekki hægt að halda úti heimasíðunni. Við hvetjum alla til að geiða sem allra fyrst.
Þjónustuvefur
Nokkur fyrirtæki eru með auglýsingu á heimasíðunni okkar, en það eru aðilar sem vilja styrkja félagið og um leið ná athygli okkar með þá þjónustu sem þeir bjóða upp á. Það er mjög mikilvægt að smíðakennarar notfæri sér þjónustu þessarra fyrirtækja ef þess er nokkur kostur. Stjórnin hvetur ykkur til þess að hringja eða mæta á staðinn og láta vita af ykkur. Það er góð þjónusta í boði og stuðningurinn er mikils virði. Eins hvetjum við ykkur til þess að beita áhrifum ykkar til að fá fleiri stuðningsaðila ef þið þekkið til í fyrirtækjum í þessum bransa.
Námskeið á döfinni
Stjórnin hefur undirbúið nokkur námskeið í vor. Á döfinni er renninámskeið, málmsmíðanámskeið og vinnukvöld í glerbræðslu. Glerbræðslunámskeiðið er ætlað byrjendum og verður eitt vinnukvöld haldið föstudaginn 13.apríl kl.19.00-22.00. Málmsmíðanámskeiðið er auglýst á námsvefnum en Vifill Valgeirsson verður með það seinnipartinn í apríl og þar verður áhersla lögð á kveikingar, renninámskeið verður kynnt fljótlega. Skráning fer fram á námsvefnum og ekki hika við að skrá ykkur á biðlista ef fullt er á námskeið sem þið hafið áhuga á því er margir eru á biðlistanum þá verður athugað með viðbótarnámskeið ef mögulegt er.
Brunnurinn á heimasíðunni
Nú hefur verið opnað nýtt myndasafn í Kennslubrunninum. Vonumst við til að félagar verði duglegir að senda okkur myndir, það er ákaflega einfalt og fljótlegt. Aðeins þarf að skrifa hvaða aldri verkefnið hæfir og gjarnan má láta eina til tvær setningar fylgja til útskýringar þar sem það á við. Á næstunni bætast við fjölmargar myndir. Til þess að senda inn myndir er farið á þessa síðu hér og sótt skjal til að fylla út.
Verkefni, kennsluhugmyndir og lausnir eru líka mjög vel þegnar. Brunnurinn er sameiginlegur pottur okkar allra, verum dugleg bæði að taka úr honum og setja í hann. Það sem er nýtt í Brunninum er kynnt á opinni síðu en lykilorð þarf til að skoða nánar og nota efnið.
Fagráð smíðakennara í Reykjavík
Stofnfundur fagráðs smíðakennara í Kennarafélagi Reykjavíkur var haldinn í kennarahúsinu mánudaginn 5. febrúar. Á fundinn mættu 10 smíðakennara víðsvegar úr borginni.
Borin var upp tillaga um stofnun fagráðs innan Kennarafélags Reykjavíkur og var hún einróma samþykkt.
Það var skoðun manna að faggreinaráð sem þetta væri einungis til að styrkja stöðu greinarinnar innan skólakerfisins og gera þeim sem hana kenna kleift að vinna að framgöngu greinarinnar.
Formaður og ritari faggreinaráðs smíðakennara Kennarafélags Reykjavíkur voru kosin:
Kristbjörn Árnason í Álftamýrarskóla
Steinunn Jónsdóttir í Árbæjarskóla
Í fræðslunefnd voru kosin:
Gunnar B. Pálsson í Hvassaleitisskóla
Guðrún Cortes í Langholtsskóla
Dagný H Árnadóttir í Borgarskóla
Sveinn Bjarni Tómasson í Melaskóla
|