| |
Fréttabréf
FÍS
3. tbl. nóvember 2006 |
 |
Pistill Formanns
Eitt af markmiðum núverandi stjórnar var að auka tölu félagsmanna. Það hefur tekist vel því nú eru um 125 smíðakennarar í félaginu sem er mjög mikil aukning.
Greiðsluseðlar fyrir félagsgjöld voru sendir öllum smíðakennurum ásamt tilboði um að ganga í félagið og hefur það átt sinn þátt i að fjölga félagsmönnum auk þess sem heimasíðan er að verða mikið aðdráttarafl. Innheimtan klúðraðist eftirminnilega þegar bankanum láðist að skrá seðlana sem valkröfu. En við gerum auðvitað gott úr því þó það hafi kostað töluverða vinnu. Allir ógreiddir seðlar verða felldir eftir aðalfund og litið svo á að þeir sem hafa ekki greitt vilji ekki vera í félaginu og þeir því teknir út af póstlista félagsins. Nú er því síðasti séns að greiða félagsgjöldin fyrir þá sem vilja vera í félaginu, fá tölvupóst, hafa aðgang að verkefnabankanum og komast á niðurgreidd námskeið.
Aðalfundur
Aðalfundur FÍS verður haldinn í listgreinahúsi KHÍ Skipholti, laugardaginn 25. nóvember. Kl.10.00-12.00.
Fundarefni verður birt á heimasíðu félagsins, kaffiveitingar verða í boði félagsins.
Heimasíðan og Brunnurinn.
Eitt af markmiðum á þessu starfsári var að stækka verkefnabankann til muna. Það hefur verið gert og er hann nú kallaður Brunnur og skiptist í verkefnasafn, kennslusafn, tæknisafn og bókasafn. Nýjasti hlutinn er í undirbúningi en það er myndasafn sem Einar Kristján Hilmarsson vefstjóri vinnur nú við að setja upp þar sem saman verður safnað myndum af mismunandi útfærslum verkefna. Von er á fjölmörgum nýjum verkefnum og áhugaverðu efni.

Námskeiðahald. Síðasta vor voru haldin tvö námskeið og nú í haust var haldið framhaldsnámskeið í tálgun og námskeið í smíði á Djembu. Námskeiðin voru vel sótt og tókust vel. Félagið fékk styrki til námskeiðahalds og stendur til að halda fleiri námskeið fljótlega. Á aðalfundinum verður gerð könnun á því hvaða námskeiðum félagsmenn óska eftir.
Myndin hér til hliðar er af verkefnum sem voru gerð á framhaldsnámskeiði í tálguvinnu.
Haustfundur.
Umræðufundur um stöðu og framtíð greinarinnar.
Haustfundur félagsins var haldinn fimmtudaginn 12. október þar sem Brynjar Ólafsson kennari í KHÍ kynnti vinnu við mastersritgerð um stöðu og framtíð hönnunar og smíði. Góðar almennar umræður voru um smíðakennslu í grunnskólum landsins. Agnes kom með nokkrar kennslubækur sem notast er við á norðurlöndunum og sýndi auk annarra verkefnabóka sem keyptar voru erlendis frá. Þá sagði Pétur frá efni sem hann hefur verið að vinna fyrir smíðamöppuna og verður bráðlega aðgengilegt í Brunninum.
Nýsköpunarkeppni grunnskólanna.
Breytingar hafa verið gerðar á Nýsköpunarkeppninni en Menntamálaráðuneytið hefur tekið við keppninni sem slíkri og félagið er ekki lengur aðili. Sveinn Bjarki sat í nefndinni fyrir hönd félagsins síðastliðin ár og þökkum við honum fyrir gott starf.
Námsefnisútgáfa.
Námsgangastofun gaf nýlega út námsefni í Hönnun og smíði fyrir 5.-7. bekk og hefur óskað eftir smíðakennurum til að semja námsefni fyrir unglingastig. Líklega koma út nokkur hefti sem verða ætluð nemendum. Það er mikið ánægjuefni þegar von er á námsefni því það hefur sárvantað í okkar námsgrein.
_______________________________________
Ábyrgðarmaður fréttabréfs:
Agnes Þorleifsdóttir
agnesth@salaskoli.kopavogur.is
|