Fréttabréf Fís / 2. tbl. maí 2006

smidakennari.is Til baka
 
Fréttabréf FÍS
2. tbl. maí  2006

 

Pistill formanns Félagatal FÍS hefur nú verið uppfært með kennitölum og heimilisföngum allra smíðakennara. Póstlisti félagsins verður uppfærður í samræmi við félagatalið. Greiðsluseðlar félgsgjalda voru sendir til allra sem ekki greiddu með millifærslu og er það von stjórnarinnar að smíðakennarar staðfesti aðild að félaginu með því að greiða seðilinn.

Kennslubrunnurinn sem inniheldur verkefnabanka og annað kennsluefni er í vinnslu og á eftir að stækka verulega á næstu misserum. Uppbygging og rekstur heimasíðunnar og verkefnabankans kostar töluvert fé sem er fjármagnað með félagsgjöldunum. Við hvetjum fólk til að greiða félagsgjaldið og senda okkur efni í kennslubrunninn. Hægt er að senda verkefni á tvennan hátt, annars vegar verkefnablað með mynd og góðri verklýsingu og hinsvegar mynd af verkefninu og stuttan texti með myndinni. Verkefni á að senda á smidakennari@internet.is.

Fræðslufundur um yngri barna kennslu
Fræðslufundur var haldinn í mars um smíðakennslu yngri nemenda. Kristbjörn Árnason og Kristinn Svavarsson sögðu frá smíðakennslu í 1.-4. bekk í sínum skólum. Almennar og góðar umræður fóru fram um kennsluhætti, verkefnaval og fl. Fjölmörg smíðaverkefni voru til sýnis frá ýmsum skólum og óhætt er að fullyrða að margir fengu nýjar hugmyndir.

Námskeið
Tvö námskeið í hljóðfæragerð voru skipulög og var það fyrra haldið s.l. laugardag 13. maí og var miðað við kennslu á yngra stigi en seinna námskeiðið verður haldið í ágúst og  er miðað við kennslu á unglingastigi en þá verður kennt að búa til Djembutrommu,  sem er afrísk tromma.

Tálgunámskeið fyrir byrjendur verður 13.-14.júní og er skráning hafin á heimasíðunni. www.smidakennari.is. Í ágúst verður einnig framhaldsnámskið í tálgutækni. Félagið greiðir námskeiðin að stórum hluta fyrir félagsmenn fyrir utan efniskostnað og eru opin öllum sem greitt hafa félagsgjaldið fyrir árið 2006.

Kristbjörn Árnason kosinn í stjórn FG
Kristbjörn smíðakennari í Álftamyrarskóla var kosinn í stjórn FG nú í apríl. Félagið óskar honum til hamingju með það og lýsir yfir mikilli ánægju með að hafa eignast verðugan fulltrúa í innstu röðum.

     Spil og fleira

Myndirnar eru frá Fræðslufundinum um yngri barna kennslu

_______________________________________

Ábyrgðarmaður fréttabréfs:
Agnes Þorleifsdóttir
agnesth@salaskoli.kopavogur.is

 

 

 



Félag íslenskra smíðakennara - Laufásvegi 81 - 101 Reykjavík - kt. 490971-0179
Um vefinn - Ábendingar - Forsíða