Fréttabréf Fís / 1. tbl. mars 2006

smidakennari.is Til baka
 
Fréttabréf FÍS
1. tbl. mars  2006

 

Pistill formanns

Félag íslenskra smíðakennara er lítið félag með stór áform. Einungis um helmingur starfandi smíðakennara er skráður í félagið og það er eitt af markmiðum stjórnarinnar að fá fleiri meðlimi. Smíðakennarar sem eru einungis á póstlista eru því kvattir til að gerast félagar en hægt verður að skrá sig á heimasíðu félagsins www.smidakennari.is innan tíðar.

Stjórnin hefur staðið fyrir a.m.k tveimur námskeiðum á ári og einnig haldið fræðslufund ásamt aðalfundi. Það er mjög mikilvægt að smíðakennarar mæti á fundina og láti í sér heyra. Það háir okkur að lítið er til af námsefni í greininni, áhugasvið og reynsla skipta örugglega miklu máli varðandi kennsluhætti og verkefnaval smíðakennara. Smíðakennarar geta hist á fræðslufundum og þar er kjörinn vettvangur til að skiptast á skoðunum, heyra hvað aðrir eru að gera og fá hugmyndir.

Það hefur verið mér ómetanlegt að hitta reynda smíðakennara sem hafa verið tilbúnir að gefa góð ráð og deila með sér góðum verkefnahugmyndum. Eins og fram kemur í þessu fréttabréfi þá er boðað til fræðslufundar 25. mars n.k. og hvet ég ykkur öll til þess að mæta á fræðslufundinn og taka aðra smíðakennara með ykkur.

Agnes Þorleifsdóttir

 

> > > > > > > > F r æ ð s l u f u n d u r < < < < < < < <

 

Smíðakennsla yngstu nemenda

Fræðslufundur verður haldinn í Hólabrekkuskóla laugardaginn 25. mars 2006. kl.10-12.30. Efnið er kennsla  nemenda í 1.-3. bekk í hönnun og smíði.

Við ræðum um kennsluhætti og verkefnaval og skiptumst á skoðunum.

Við veltum upp spurningunni hvort við séum að nýta yngri barna kennsluna nægilega vel.

Nokkrir úr stjórn munu taka til máls og ræða um kennsluna ásamt Kristbyrni Árnasyni sem segir okkur frá verkefnavali og kennsluháttum hjá nemendum í Álftamýrarskóla.

Verkefni verða til sýnis og eru allir kvattir til að koma með kennsluverkefni sem gefist hafa vel.

 

Nefndir

Fræðslu- og kjaranefnd hafa tekið til starfa.

Í fræðslunefnd sitja Kristbjörn Árnason, Pétur Th. Pétursson og Jóhann Örn Héðinsson.

Í kjaranefnd sitja Steinunn Jónsdóttir, Halla Leifsdóttir og Kristinn Svavarsson.

 

Námskráin

Tillögur að breytingum á námskrá í hönnun og smíði liggja nú fyrir. Félagið sendi bréf til menntamálaráðuneytisins með nokkrum athugasemndum varðandi aðalnámskránna. Þar var m.a ýtrekað að nauðsynlegt sé að greinin hafi fasta 2 tíma á viku og að það sé skýrt tekið fram. Þá var bent á nokkur önnur atriði ásamt því að óska eftir að settur verði inn texti um að ákveðin vélakostur sé nauðsynlegur til þess að kennarinn geti sinnt starfi sínu vel og að fjölbreytni og sjálfstæði geti verið sýnileg í verkefnum nemenda. Eins var óskað eftir að áfangamarkmið miðuðust við 8.bekk í stað 7.bekkjar eins og tillögurnar gera ráð fyrir.

 

Félagsgjald

Félagsgjald fyrir árið 2006 verður innheimt næstu daga en það er kr. 2500 eins og undanfarin ár. Þetta er örugglega hóflegt gjald sem veitir aðgang að niðurgreiddum námskeiðum og kennsluefni á netinu fyrir utan þá samstöðu sem það sýnir að taka þátt í starfsemi félagsins sem á og vill standa vörð um kennslu greinarinnar og styðja kennara eftir megni. Allir smíðakennarar eru hvattir til þess að greiða gjaldið sem fyrst. Í ár verður í annað sinn boðið upp á að greiða með millifærslu í heimabanka (eða útibúi). Það sparar félaginu talsverða peninga og vinnu að hafa þann háttinn á. Þeir sem geta hugsað sér að greiða á þennan hátt eru beðnir um að gera það fyir 15. apríl en eftir það verða gíróseðlar sendir til þeirra sem ekki hafa greitt.

 

Námskeið á döfinni

Félagið gerði könnun á námskeiðsáhuga og mest var óskað eftir tálgunámskeiði og hljóðfæranámskeiði. Stjórnin hefur sótt um styrk til þess að halda námskeiðin á vormánuðum. Kennarar á tálgunámskeiði verða Ólafur Oddsson og Brynjar Ólafsson. Um hljóðfæranámskeið sjá Úlfar í Áslandsskóla og Kristbjörn Árnason í Álftamýrarskóla. Námskeiðin eru ætluð félagsmönnum sem greitt hafa félgsgjald og verða auglýst á heimasíðu félagsins. www.smiðakennari.is

 

Kennslubrunnurinn

Það er erfitt og tímafrekt að vera alltaf að finna upp hjólið. Smíðakennarar eru oft einangraðir í starfi sínu og leggja margir mikla vinnu í að gera gott námsefni sem annars er ekki í boði. Lumar þú á skemmtilegu efni, verkefnablöðum eða góðum kennsluverkefnum. Deildu því með okkur, það vantar verkefni í kennslubrunnin.

_______________________________________

Ábyrgðarmaður fréttabréfs:
Agnes Þorleifsdóttir
agnesth@salaskoli.kopavogur.is

 

 



Félag íslenskra smíðakennara - Laufásvegi 81 - 101 Reykjavík - kt. 490971-0179
Um vefinn - Ábendingar - Forsíða