Félag íslenskra smíðakennara rekur þennan
vef smidakennari.is, en með honum er stefnt að því
að ná til allra smíðakennara á landinu
með fræðslu um sameiginleg hagsmunamál, umræður,
endurmenntun, kennsluefni og upplýsingar um vörur og
þjónustu sem þörf er á við kennsluna
og rekstur smíðastofunnar.
Nokkuð hefur skort á aðgengi kennara að upplýsingum
um hvar efni, vélar og verkfæri til kennslunnar fást.
Smíðakennslan nær yfir vítt svið og
nemendur fást við mjög fjölbreytt viðfangsefni.
Til þess að styrkja vefinn okkar fjárhagslega
höfum við ákveðið að leita til þeirra
sem selja vörur eða þjónustu sem nýtist
í smíðakennslu og bjóða þeim
til samstarfs. Með samstarfi fá þjónustuaðilar
góðan aðgang að smíðakennurum til
að koma vöru sinni og þjónustu á framfæri
en í staðinn styrkja þeir vefinn með ákveðnu
fjárframlagi á ári.
Auk þess að mynd eða texti er birtur á forsíðu
og/eða þjónustusíðu þá
bjóðum við upp á að kynna sérstaklega
nýjar vörur eða tilboð þeirra sem eru
með mynd.
Markmiðið með smíðakennaravefnum er að
vera öflugur upplýsingamiðill og samstarfsvettvangur
fyrir smíðakennara og aðra kennara í svipuðum
greinum. Þeir sjá yfirleitt um öll innkaup til
kennslunnar.
Hvað segir þú og þitt fyrirtæki um
að taka þátt í þessu samstarfi með
okkur?
Hér eru upplýsingar um þá möguleika
sem eru í boði en einnig er hægt að semja um
annað ef það hentar betur. Með lið 1 - 3 fylgja
3 línur á þjónustuvef sem lýsa
fyrirtækinu auk þess sem við bjóðum upp
á undirsíðu með tilboðum eða öðru
ef áhugi er fyrir hendi.
|
Umfang kynningar |
|
Forsíða |
| 1 |
|
| 200 x 50 punkta mynd með tengingu við vefsíðu. |
|
|
2 |
|
| 130 x 50 punkta mynd með tengingu við
vefsíðu. |
|
|
3 |
|
| 200 x 30 punkta borði með nafni og tengingu
|
|
|
| 4 |
| Aðrir möguleikar eftir samkomulagi |
|
|
|
Hafðu samband ef þú
hefur áhuga!
|