Fréttir

smidakennari.is Til baka
2.2.2012/ekh
Námskeið fyrir smíðakennara

Nú eru í boði 4 námskeið fyrir smíðakennara á vegum Fís. Þessi námskeið sem í boði eru að þessu sinni eru kynnt hér á síðunni og eru þeir sem áhuga hafa hvattir til að kynna sér það og skrá sig sem fyrst. Um er að ræða málmsmíðanámskeið fyrir byrjendur og annað fyrir lengra komna, mögnuð verkefni sem er námskeið um notkun rafmagns í smíðaverkefnum og síðan er nýtt námskeið sem heitir grunnur 1 og fjallar um nokkur undirstöðuatriði smíðakennslunnar.  Nánar má lesa um námskeiðin og skrá sig á http://smidakennari.is/namskeid/namsk_kynn.asp

 

30.1.2012/ekh
Smíðakennara vantar í 2 - 3 vikur

Smíðakennara vantar í forföll í Seljaskóla frá 20. febrúar í 2-3 vikur.
Um er að ræða samtals 16 tíma á viku í 5. - 8. bekk. Allt fyrir hádegi.
Vetrarleyfi er 22. - 24. feb.
Áhugasamir hafi samband við skólastjóra Margréti Sigursteinsdóttur í síma 664 8331


 



Félag íslenskra smíðakennara - Laufásvegi 81 - 101 Reykjavík - kt. 490971-0179
Um vefinn - Ábendingar - Forsíða